Fundur í stjórn Minjasafnsins á Akureyri miðvikudaginn 21. mars 2007
kl. 18:00 í Minjasafninu Aðalstræti 58 á Akureyri.

 

Mætt voru:  Kristján Ólafsson, Ragnheiður Jakobsdóttir, Baldvin Sigurðsson, Guðrún Kristjánsdóttir, Dóróthea Jónsdóttir, safnstjóri Guðrún María Kristinsdóttir einnig mættu á fundinn þeir Valtýr Sigurbjarnarson framkvæmdastjóri Héraðsnefndar Eyjafjarðar og Ragnar J. Jónsson endurskoðandi hjá Deliotte ehf.

 

Formaður bauð fundarmenn velkomna, sérstaklega Valtý og Ragnar, og skipaði Guðrúnu Kristjánsdóttir fundarritara.

 

Gjörðir fundarins voru:

 

l.          Farið var yfir drög að ársreikningi safnsins og útskýrði endurskoðandi reikninginn.  Ljóst er að fjárhagslega staða er ekki jafn góð og gert var ráð fyrir. Reksturinn ræddur ítarlega og  farið gaumgæfilega yfir alla liði.  Ákveðið að endanlegur reikningur   verði tilbúinn fyrir næsta fund sem verður 3ja apríl.

            Umræður spunnust um hvaða væntingar Héraðsnefndin eða sveitarfélög sem leggja fé til rekstursins hafa til  safnsins.

2.         Aðalfundur Minjasafnsins ákveðinn 26. apríl n.k.

3.         Samþykkt að senda Akureyarstofu bréf og óska eftir stefnumótun Akureyrarstofu á söfnunum í innbænum.

4.         Verkefni Minjasafnsins framundan:

            Nauðsynlegt er að endurskoða fjárhagsáætlunina.  Viðburðadagskráin hefst á sumardaginn fyrsta.  Sumarsýningar sem framundan eru opna 2 júní.  Kristín Sóley sér um Gásaverkefnið og er hún starfsmaður Hörgárbyggðar.  Minningarstofa um Jónas Hallgrímsson á Hrauni verður opnuð 16. nóvember og er undirbúningur þegar hafinn.

5.         Önnur mál:

            Samningur við Iðnaðarsafnið sem rennur út 1. júní verður ekki endurnýjaður óbreyttur.  Áætlað er að Iðnaðarsafnið kaupi  sérfræðiþjónustu frá Minjasafninu og einnig að sumarstarfsfólk Minjasafnsins verði þar líka.  Nýr stjórnarformaður Iðnaðarsafnsins er Þorsteinn Arnórsson

            Guðrún M greindi frá því að Ingibjörg í Laufási verði eitt ár til viðbótar og verður því resturinn í Laufási óbreyttur í sumar

              Fleira ekki gert,  fundargerðin skrifuð eftir minnisblaði, fundi slitið kl. 19:35.  

Guðrún Kristjánsdóttir

-fundarritari-