Flýtilyklar
Laufás

Laufás kemur við sögu skömmu eftir að Ísland byggðist og þar hefur staðið kirkja frá fyrstu kristni. Í katólskum sið var hún helguð Pétri postula. Prestssetur hefur verið í Laufási frá fyrstu kristni og er enn. Síðasti presturinn sem bjó í gamla bænum, séra Þorvaður Þormar, flutti árið 1936 í nýtt prestssetur og þar bjuggu Laufássprestar fram til ársins 2000.
Sú kirkja sem nú stendur í Laufási var byggð 1865. Meðal merkra gripa í eigu kirkjunnar er predikunarstóll sem ber ártalið 1698. Við austurgafl kirkjunnar stendur eitt elsta reynitré landsins frá 1855.
Búsetu í Laufási má rekja allt aftur til heiðni en í elsta hluta gamla bæjarins sem nú stendur er talið að séu viðir allt frá 16. og 17. öld. Bærinn var endurbyggður af mikilli reisn í tíð séra Björns Halldórssonar sem sat staðinn árin 1853-1882. Laufásbærinn er stílhreinn burstabær, dæmigerður fyrir íslenska bæjagerð þess tíma, en þó allmiklu stærri. Algengt var að tuttugu til þrjóatíu manns væru til heimilis í Laufási, því margt vinnufólk þurfti til að nytja þessa gróðursælu kostajörð en henni fylgdu mikil hlunnindi.
Laufásbærinn er nú búinn húsmunum og áhöldum líkast því sem tíðkaðist í kringum aldamótin 1900.
Opið er daglega frá 13. maí til 15. september frá 9-18.
Á veturna eftir opið eftir samkomulagi.
Í þjónustuhúsi er minjagripaverslun og veitingastaður þar sem hægt er að kaupa þjóðlegar veitingar.
Veitingasalurinn í Laufási tekur um 80 manns í sæti. Hann er leigður út fyrir ýmisskonar samkomur svo sem veislur, fundi eða þorrablót.
Hægt er að leigja Gamla prestshúsið í Laufási fyrir fundi og veislur. Salirnir rúma 80 manns í sæti.
Sími: 463 3196 eða 895 3172
Tölvupóstur: laufas@akmus.is
Umsjónarmaður í Laufási er Hólmfríður Erlingsdóttir
Sími: 895 3172
Handraðinn er hópur fólks sem vinnur að því að viðhalda þekkingu á þjóðháttum landsins hvort sem er í handverki, tónlist, sagnahefð eða náttúru.
Skoða heimasíðu Handraðans
Myndir úr Laufási

Opnunartími
Minjasafnið á Akureyri
er opið alla daga frá 1.júní - 15.sept kl 10-17
Skrifstofa safnsins er opin virka daga frá kl. 8-16.
Gamli bærinn Laufás er opinn frá 30. maí daglega kl 9-18 til 12. september.
Nonnahús: opið alla daga frá 1. júní -1.sept. kl 10-17
